Fotbolti.net
21.06.26 - 00:14
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Spánn: Malaga aftur í efstu deild eftir átta ára fjarveru - „Þráhyggja sem varð að veruleika“

Spánn: Malaga aftur í efstu deild eftir átta ára fjarveru - „Þráhyggja sem varð að veruleika“
Canon

Mynd: Malaga

Malaga er komið aftur í La Liga átta árum eftir að hafa fallið úr deildinni.
Umspilið í spænsku B-deildinni hefur staðið yfir síðustu vikur. Malaga sló Las Palmas út í undanúrslitum og mætti síðan Almeria í úrslitaeinvígi um sæti í La Liga.

Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli og því var allt undir í seinni leiknum.

Það var hiti í mönnum strax fyrir leik. Stuðningsmenn Almeria köstuðu grjóti í liðsrútu Malaga á leiðinni á völlinn, en það virtist ekki slá leikmenn liðsins út af laginu.

Malaga tók völdin um miðjan síðari hálfleik og skoraði tvö mörk á sex mínútna kafla. Chupe kom liðinu yfir á 65. mínútu og skömmu síðar bætti David Larrubia við öðru marki.

Leo Baptistao minnkaði muninn fyrir Almeria þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka og lokakaflinn varð æsispennandi.

Það sauð upp úr undir lokin. Thalys fékk rautt spjald í liði Almeria og skömmu síðar fékk Aaron Ochoa, miðjumaður Malaga, tvö gul spjöld með stuttu millibili og var einnig rekinn af velli.

Malaga hélt þó út og tryggði sér sæti í La Liga á nýjan leik.

Síðustu ár hafa verið félaginu erfið. Malaga féll úr La Liga árið 2018 og fimm árum síðar niður í C-deildina. Félagið hefur hins vegar náð að snúa þróuninni við og er nú komið aftur meðal þeirra bestu á Spáni.

„Þetta var þráhyggja en er nú orðið að veruleika,“ skrifar Malaga á X.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.