Baldvin Sturluson hefur gert félagaskipti yfir til KFG í 3. deildinni frá Haukum í Inkasso-deildinni.
Baldvin hefur komið víða við á ferlinum en hann lék 17 leiki með Haukum í Inkasso í fyrra en hefur aðeins spilað þrjá leiki með liðinu á þessu tímabili.
Baldvin hefur komið víða við á ferlinum en hann lék 17 leiki með Haukum í Inkasso í fyrra en hefur aðeins spilað þrjá leiki með liðinu á þessu tímabili.
Hann er 29 ára og á að baki 141 leik með meistaraflokki hér á landi.
KFG er í harðri toppbaráttu í 3. deildinni en liðið situr í 3. sæti með 18 stig, fjórum stigum á eftir KH og Dalvík/Reyni.
Þá hefur Davíð Ingvarsson skipt aftur yfir til Breiðabliks en hann hefur verið á láni hjá Haukum frá Blikum í sumar. Davíð spilaði 11 leiki með Haukum í sumar og skorað eitt mark.
Athugasemdir