Það fóru þrír leikir fram í 4. deildinni í kvöld. Skallagrímur og Mídas unnu á heimavelli á meðan Úlfarnir gerðu jafntefli við KB.
Skallagrímur lagði Stokkseyri í B-riðli á meðan Mídas vann Álafoss í C-riðli en öll þessi lið eru í neðri hluta riðlanna.
Úlfarnir og KB gerðu jafntefli í D-riðli en hvorugt liðið er að komast í úrslitakeppnina.
B-riðill:
Skallagrímur 2 - 1 Stokkseyri
Úrslit af urslit.net
C-riðill:
Mídas 4 - 2 Álafoss
1-0 Gunnar Arnarson ('43)
1-1 Óskar Þór Jónsson ('44)
1-2 Aron Dagur Heiðarsson ('47)
2-2 Hjörtur Þórisson ('58)
3-2 Davíð Þorleifsson ('84)
4-2 Haukur Plöder ('94)
Rautt spjald: Ísak Ólason, Álafoss ('84)
D-riðill:
Úlfarnir 3 - 3 KB
1-0 Arnór Siggeirsson ('7)
1-1 Róbert Vattnes Mbah Nto ('11)
1-2 Praveen Gurung ('48)
2-2 Steinar Haraldsson ('62)
3-2 Jón Haukur Bjarnason ('67)
3-3 Sebastían Daníel Elvarsson ('85)
Athugasemdir