Fotbolti.net
12.08.26 - 22:02
Snæbjört Pálsdóttir

Guðni um Ídu Marín: Það er mjög stutt í að það verði tilkynnt

Auglýsing
Guðni um Ídu Marín: Það er mjög stutt í að það verði tilkynnt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

FH vann 4-6 sigur á Fram í tíu marka leik í Bestu deildinni í kvöld. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, tók sigrinum af yfirvegun eftir leik og sagði markaveisluna líklega hafa verið ágæta skemmtun fyrir áhorfendur.

Lestu um leikinn: Fram 4 - 6 FH

„Er ekki skemmtilegra að fara á leiki með fullt af mörkum? Flott, tíu mörk í dag og sex fyrir FH-liðið. Það var lagt upp með að skora fleiri en andstæðingurinn og við gerðum það í dag.“

Guðni sagði leikinn hafa verið alls konar en taldi FH hafa gert út um hann þegar liðið komst í 5-1.

„Leikurinn var í raun og veru búinn í stöðunni 5-1 og eftir það bar hann þess merki. Það var ekki mikið um varnartilburði oft á tíðum hjá hvorugu liðinu og leikurinn var fram og til baka, ping pong.“

„Við hefðum getað skorað miklu fleiri mörk en við gerðum í dag en maður kvartar ekki við sex mörkum.“


Fram náði að finna svæði bak við vörn FH og Guðni viðurkenndi að það hafi ekki komið á óvart.

„Við vissum að þær spila þennan fótbolta þar sem þær koma boltanum við fyrstu tilraun fram á við og eru með öfluga leikmenn fremst sem geta skapað alls konar vandræði.“

„Við vorum bara að pæla í okkur. Við vissum líka að það þyrfti að díla við okkar sóknartilburði og þær réðu ekki við það í dag.“


Aldís byrjaði á bekknum í kvöld en Guðni sagði ekkert nýtt vera að hrjá hana. Þeir væru einfaldlega að passa upp á hana eftir krossbandsslitin í fyrra.

„Hún er ekki 100% og við erum bara að passa upp á hana. Ef næsti leikur hjá okkur væri í næstu viku þá hefði hún spilað þennan leik en það eru þrír dagar á milli og við spilum aftur á laugardaginn.“

„Við viljum ekki að hún meiðist aftur og það er ástæðan fyrir því að Aldís var ekki í markinu í dag.“


Steinunn stóð í markinu og Guðni var ánægður með hana.

„Steinunn var tábrotin og er komin til baka. Nýi markvörðurinn (Sigurborg Katla) átti að spila þennan leik en leikheimildin var ekki komin þannig að Steinunn stóð í markinu og nýtti tækifærið mjög vel.“

„Ég er ánægður með hana og ánægður fyrir hennar hönd að fá leik í Bestu deildinni.“


Guðni var einnig spurður út í Ásdísi Karen og um það að hún væri að fara að leysa Ídu Marín af hólmi sem sögur segja að sé að fara til Hammarby erum við nær einhverjum svörum um það?

„Það er bara í vinnslu og ég held það sé mjög stutt í að það verði annað hvort tilkynnt af eða á.“

Hann vildi ekki fullyrða hvort hún yrði með á laugardaginn.

„Þetta eru samtöl milli félaga og að sjálfsögðu lítur maður inn á hana líka. Hún þarf að taka þessa ákvörðun hvort hún fari yfir og skipti eða ekki. Vonandi fer allt vel hjá henni því hún á það sannarlega skilið.“


FH fær stórleik á heimavelli á laugardaginn þegar þær mæta Breiðablik í ekta toppbaráttuslag og Guðni lofar áfram sama sóknarboltanum.

„Þið fáið blússandi sóknarleik og vonandi mikla skemmtun. Leikur sem verður vonandi opinn. Hann verður allavega ekki lokaður af hálfu FH.“

„Frábær umgjörð þar hjá Blikum. Fullur völlur og vonandi getum við boðið upp á eitthvað svipað á fagra Kaplakrikavelli.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.