Fotbolti.net
12.08.26 - 21:40
Snæbjört Pálsdóttir

Eftir tíu marka leik: „Þetta var smá eins og villta vestrið“

Auglýsing
Anton Ingi Rúnarsson segist hafa tekið ákveðinn séns gegn sterku FH-liði en hrósaði sínum leikmönnum fyrir karakterinn í 4-6 tapinu.

Anton Ingi Rúnarsson segist hafa tekið ákveðinn séns gegn sterku FH-liði en hrósaði sínum leikmönnum fyrir karakterinn í 4-6 tapinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Fram tapaði 4-6 gegn FH á Lambhagavellinum í kvöld í 16. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn var algjör markaveisla þar sem sjö mörk voru skoruð í seinni hálfleik. 

Lestu um leikinn: Fram 4 - 6 FH

Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, sagði leikinn hafa verið opinn og fjörugan.

„Kannski slakur varnarleikur á báða bóga en bæði lið sóttu hratt. Ég vissi alveg að ég væri að taka ákveðinn séns á að reyna að sækja ofarlega á lið eins og FH.“


Fram náði ekki að skora í síðasta leik en setti fjögur mörk gegn FH og Anton tók það sem jákvæðan punkt.

„Við ætluðum okkur að skora. Við skoruðum ekki í síðasta leik og skoruðum fjögur í dag þannig að það var jákvætt.“

„Þetta var smá eins og villta vestrið á tímabili, bara á milli enda. Bæði lið voru að reyna að skora fleiri mörk.“



 Anton var ánægður með karakterinn í sínu liði. 

„Hann er bara góður og stelpurnar hafa verið öflugar í sumar. Ég held að það sé kannski einn leikur í minninu þar sem við höfum gefist upp nokkuð snemma en annars höfum við bara haldið áfram.“

„Við höfum í rauninni náð í 16 fleiri stig heldur en fólk talaði um fyrir tímabilið. Það sýnir karakterinn sem býr í liðinu og trúna sem við höfum á verkefninu.“


Fram mætir Grindavík/Njarðvík í næsta leik og Anton býst við hörkuleik.

„Hann verður líklega svipaður. Við höfum spilað tvo leiki og báðir hafa verið frekar lokaðir þannig séð. Kannski opnum við bara þriðja leikinn og bjóðum upp á svona alvöru dans í þeim leik.“


Taylor Marie Hamlett skoraði síðasta mark Fram í kvöld og hefur verið öflug í sumar. Anton var spurður hvort hún gæti farið að blanda sér í baráttuna um gullskóinn.

„Ætli hún sé ekki bara að spila sinn leik. Hún spilaði bara vel í leikjunum sem hún spilaði í fyrra áður en hún varð fyrir meiðslum.“

„Hún er bara hörkusenter, það eru mörk í henni og hún er búin að sýna það. Hún getur alveg spilað á stærra sviði heldur en hér.“

„Ef hún heldur áfram að sinna sínu þá endar hún líklega á toppi markalistans.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.