Fotbolti.net
13.08.26 - 09:25
Elvar Geir Magnússon

Galatasaray gerir tilboð í Martinelli - Zubimendi gæti verið seldur

Gabriel Martinelli í leik með Brasilíu.

Gabriel Martinelli í leik með Brasilíu.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Þá skulum við skyggnast inn í slúðurheima með Powerade eins og við gerum á hverjum degi. Það styttist óðfluga í ensku úrvalsdeildina en um komandi helgi verður leikið um Samfélagsskjöldinn góða.
Galatasaray hefur lagt fram 38,4 milljóna punda tilboð í brasilíska framherjann Gabriel Martinelli (25) hjá Arsenal. (Florian Plettenberg)

Arsenal er opið fyrir því að selja spænska miðjumanninn Martin Zubimendi (27) fyrir að minnsta kosti 77 milljónir punda. Chelsea gæti gert tilboð. (Teamtalk)

Chelsea hefur gefið Man City og öðrum félögum frest til föstudags til að leggja fram tilboð í Enzo Fernandez (25). Chelsea vill fá 120 milljónir punda fyrir hann. (BBC)

Aston Villa hefur átt viðræður við West Ham um hægri bakvörðinn Aaron Wan-Bissaka (28) en Kongómaðurinn er metinn á 25 milljónir punda. (Athletic)

Ipswich er að tryggja sér hægri bakvörðinn og miðjumanninn Abdoul Ouattara (20) frá Strasbourg. Hann er Fílabeinsstrendingur. (Sky Sports)

Aston Villa hefur gert lánstilboð með möguleika á kaupum í Joao Palhinha (31), miðjumann Bayern München. Þýska félagið vill helst selja hann beint. (Florian Plettenberg)

Newcastle er að vinna í að reyna að kaupa hægri bakvörðinn Amar Dedic (23) frá Benfica. Bosníumaðurinn er verðmetinn á um 25 milljónir punda. (Mail)

Hull City er bjartsýnt á að geta fengið Mert Komur (21) frá Augsburg þrátt fyrir að 10,2 milljóna punda tilboð í Þjóðverjann hafi verið hafnað. (TeamTalk)

Joe Willock (26), miðjumaður Newcastle, er opinn fyrir því að ganga í raðir Besiktas. 17 milljónir punda duga líklega til að krækja í Englendinginn. (Foot Mercato)

Carlos Baleba (22), miðjumaður Brighton og Kamerún, er á óskalista Newcastle. Félagið vill styrkja miðsvæði sitt eftir að hafa selt Bruno Guimaraes (28) og Sandro Tonali (26). (Mail)

Hull City er nálægt því að kaupa Joe Gelhardt (24) aftur frá Leeds eftir að enski sóknarmaðurinn hefur verið á láni hjá Hull síðustu tvö tímabil. (Sky Sports)
Martin Zubimendi.

Martin Zubimendi.

Canon

Mynd: EPA

Palhinha.

Palhinha.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.