12.08.26 - 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
FCK í umspil Sambandsdeildarinnar - Viktor Bjarki í hópnum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
FC Kaupmannahöfn er komið í umspil um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar eftir stórsigur á ungverska liðinu Debrecen.
FCK vann fyrri leikinn 3-0 á útivelli þar sem hinn 18 ára gamli Gunnar Orri Olsen spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Danska liðið var ekki í neinum vandræðum í kvöld þegar liðið vann 5-1 sigur og vann einvígið samanlagt 8-1.
Viktor Bjarki Daðason hefur verið að berjast við meiðsli síðan í maí. Hann var í hópnum en kom ekkert við sögu eins og Gunnar Orri og Rúnar Alex Rúnarsson.