Fotbolti.net
13.08.26 - 08:30
Sævar Þór Sveinsson

Eignir Nordsjælland nærri því fimmfalt meiri en samanlagðar eignir íslenskra félaga

Valur er með bakið upp við vegginn fyrir seinni leik liðanna.

Valur er með bakið upp við vegginn fyrir seinni leik liðanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Utan Vallar

Í dag spilar Valur seinni leik sinn við Nordsjælland í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrri leikurinn fór fram hér á Íslandi í síðustu viku þar sem Nordsjælland sigraði 2-0. Seinni leikurinn fer fram seinna í dag í Danmörku.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 9. ágúst á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Líkt og með rekstrarreikninginn þá er efnahagsreikningur Nordsjælland einnig margfalt stærri. Í árslok 2025 átti Nordsjælland eignir sem námu 12.976 milljónum króna en eignir Vals námu 215 milljónum króna.

Til þess að setja þessa tölu hjá Nordsjælland í samhengi þá eru samanlagðar eignir hjá 23 íslenskum félögum (í stuttu máli öll liðin í efstu tveimur deildunum) rúmlega 2.832 milljónir króna. Af þessum ríflega 13 milljarða króna eignum Nordsjælland eru 1.991 milljón króna handbært fé. Þannig einungis lítill hluti af eignum Nordsjælland er handbært fé.

Stærsti hluti eigna Nordsjælland eru nefnilega viðskiptakröfur, sem voru tæplega 10 milljarðar króna. Sennilega er einhver hluti af því peningur sem félagið á eftir að fá vegna sölu leikmanna. Ef litið er svo á veltufjárhlutfall má sjá að það er betra hjá Val, en þar er það 461% samanborið við 274% hjá Nordsjælland.

UTAN VALLAR: Ársreikningar Vals og Víkings bornir saman við Nordsjælland og FC Thun
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Ársreikningar Vals og Víkings bornir saman við Nordsjælland og FC Thun

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.