Gerði fjórar breytingar í hálfleik: Hefði getað tekið sex í viðbót út af


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Svekktur, ósáttur og eiginlega vildi ég fá meira úr leiknum líka" sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals eftir 3-2 tap á úti velli gegn Þrótti. Þróttur komst í 3-0 forystu í fyrri hálfleik en Valur skoraði tvö mörk í seinni hálfleik.
Matthías var ósáttur með fyrri hálfleikinn.
„Ósáttur með fyrri hálfleikinn, mér fannst þetta vera svart og hvítt hjá Val í dag. Mér fannst við vera undir í baráttu í fyrri hálfleik, í þessum fyrsta og öðrum bolta, þessum návígum og svona. Mér fannst það skemma fyrir, við féllum neðarlega á völlinn og náðum ekki að komast út úr þeim skotgröfum. Þó ég segi þetta þá rifjast það upp fyrir mér að eftir leikinn fengum við tvö, þrjú mjög góð færi í fyrri hálfleiknum."
Valur gerði fjórar breytingar í hálfleik.
„Ég vildi bara fá svör. Eins og stundum er sagt í svona viðtölum að maður hefði getað tekið sex í viðbót út af en það má ekki því miður. Ég fékk alveg svör en því miður fæ ég núll stig samt."
„Það var líf í öllu liðinu. Líka hjá þeim sem voru enn þá inn á, stigu upp. Það var ákefð í okkur og við fórum framar og vorum tilbúnar að halda okkur framar líka. Fórum að vinna einhver návígi og fullt af þeim. Fórum í samkeppni um fyrsta og annan bolta út um allt, á móti góðu liði Þróttar."
„Þetta er það sem maður er að tala um baráttuna og svo einhvern veginn föllum við neðar og þá fer þetta að líta út þannig að við erum alltaf frekar langt frá mönnum og náum aldrei að klukka einn og neinn og komumst aldrei í návígi."
