13.08.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hildur Katrín til baka í FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur kallað Hildi Katrínu Snorradóttir (2008) aftur úr láni frá Grindavík/Njarðvík. Hildur kom við sögu í 14 leikjum í deild og bikar með Grindavík/Njarðvík í sumar og skoraði tvö mörk.
FH, sem er á toppnum í Bestu deildinni, er á leið í Evrópuverkefni. FH mætir Apollon frá Kýpur í 1. umferð forkeppni Evrópubikarsins. Um fyrstu Evrópuleiki í sögu kvennaliðs FH er að ræða.
Þá er Vigdís Edda Friðriksdóttir gengin til liðs við Stjörnuna frá FH. Vigdís sleit krossband í apríl í fyrra en hún hefur komið við sögu í þremur leikjum með FH í sumar.
Rakel Rós Unnarsdóttir er gengin til liðs við Fram frá Grindavík/Njarðvík en hún hefur spilað einn leik í sumar. Þá er Hugrún Helgadóttir farin til Sundsby í Danmörku.