Kom inn af bekknum og skoraði tvö: Við erum bara óstöðvandi

Hrönn Haraldsdóttir kom inn af varamannabekknum og skoraði tvö mörk þegar FH vann ótrúlegan 7-3 sigur á Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrönn Haraldsdóttir kom inn af varamannabekknum og skoraði tvö mörk þegar FH vann ótrúlegan 7-3 sigur á Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH vann stórkostlegan 7-3 sigur á Stjörnunni í 13. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Hrönn Haraldsdóttir kom inn af varamannabekknum hjá FH og setti tvö mörk í tíu marka veislu á Kaplakrikavelli.
Hrönn var að vonum ánægð eftir leik.
„Hún var bara geggjuð. Það var geggjuð orka og ógeðslega gaman. Þessar stelpur eru æði.“ Svaraði Hrönn aðspurð um tilfinninguna inn á vellinum.
Hrönn kom inn á 64. mínútu og náði að skora tvö mörk fyrir FH.
„Fyrra markið var bara góð pressa og í seinna markinu fylgdi ég bara með í sóknina og kláraði. Bara geggjuð tilfinning. Loksins skora, mjög gott.“
Hrönn lék með ÍH í fyrra en hefur nú gert sig gildandi í sterku FH-liði. Hún er ánægð með hópinn í Kaplakrika.
„Þetta eru æðislegar stelpur og æði að spila með þeim. Bara bestu vinkonur mínar og ég er geggjað þakklát að vera með þeim.“
Stjarnan var fyrir leikinn það lið sem hafði fengið fæst mörk á sig í deildinni en FH skoraði sjö mörk í kvöld. Hrönn segir FH-liðið vera í miklum ham.
„Við erum bara í einhverju stuði núna sko. Við erum að skora geggjað mörg mörk í hverjum leik. Þetta var bara sama leikplan og fyrir alla leiki, bara gera okkar.“
FH hefur raðað inn mörkum að undanförnu og var Hrönn spurð hvort eitthvað lið í deildinni gæti stoppað þær.
„Ég held ekki. Ég held við séum bara unstoppable.“
Aðspurð hvort það stefndi þá í titil í haust var svarið stutt og skýrt.
„Það held ég.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.




