Bjarni Guðjóns: Virkilega ósáttur
Auglýsing

Bjarni Guðjónsson þjálfari KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Guðjónsson þjálfari KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við komum hérna eftir þremur stigum og við eigum að taka þrjú stig. Ég er virkilega ósáttur með það,\" sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari KR eftir 1-1 jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld.
„Mér fannst vanta meiri gæði í spilamennskuna og sérstaklega í fyrri hálfleik. Það vantaði að menn settu boltann á jörðina og spiluðu af meiri krafti og ákefð og með meiri tilgang. Það var fullrólegt yfir okkar sóknarleik og við færum hann hægt kantana á milli og því var erfiðara að skapa færi.\"
„Það sést hvers megnugir við erum eins og þegar við skoruðum markið. Þá fór boltinn hratt manna á milli og þeir réðu lítið við okkur. Það er ekki nóg að gera það einu sinni í leik og ég tala nú ekki um þegar við erum lentir 1-0 undir. Þá léttum við leikinn fyrir Eyjamenn að spila á móti okkur og að liggja í vörn.\"
Gary Martin var kominn aftur í framlínu KR í kvöld.
„Hann er hörkugóður framherji og það er samkeppni um stöður hjá okkur. Hann er búinn að standa sig mjög vel á æfingum undanfarið og átti skilið tækifæri í liðinu.\"
KR er núna 5 stigum á eftir FH í toppsætinu og einu á eftir Breiðabliki í 2. sæti og hefur spilað gegn þeim báðum.
„Við gerum allt sem í okkar valdi stendur áfram til að veita þessum liðum samkeppni en vissulega er það erfitt þegar ekki er meira eftir af mótinu. Við þurfum bara að fókusa á einn leik í einu og sjá hvað við getum gert. Sjá hvernig gengur hjá þessum liðum, þau eiga eftir að mætast.\"