21.08.26 - 22:32
Ívan Guðjón Baldursson
Lampard: Leeds tapaði hérna í fyrra

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Frank Lampard þjálfari Coventry City svaraði spurningum eftir 3-0 tap gegn Englandsmeisturum Arsenal í opnunarleik nýs tímabils í ensku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI
England: Auðvelt fyrir Englandsmeistarana
Coventry sá aldrei til sólar gegn sannfærandi lærlingum Mikel Arteta, en þetta var fyrsti úrvalsdeildarleikur liðsins síðan 2001.
„Við mættum stórkostlegu liði og þetta var dýrmæt kennslustund fyrir strákana, við lærum af svona leikjum. Við mættum Englandsmeisturunum og þeir spiluðu eins og meisturum sæmir. Við vildum ekki fá svona mörg mörk á okkur en við erum bara að fóta okkur, við verðum betri þegar tekur að líða á tímabilið," sagði Lampard sem gerði frábæra hluti við stjórnvölinn hjá Coventry á síðustu leiktíð og rúllaði upp Championship deildinni.
„Það er mjög erfitt að koma inn í þessa deild og ég man í fyrra þegar Leeds United voru nýliðar og töpuðu á þessum velli í fyrstu umferð, en héldu sér samt uppi í deildinni. Það er erfitt aðlögunarferli framundan en við getum þetta, ég er viss um það.
„Við hötum að tapa, við erum ekki vanir því, en við erum með sjö eða átta leikmenn sem voru að spila sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni. Ég er stoltur af því hvernig strákarnir brugðust við því að lenda fyrst tveimur og svo þremur mörkum undir. Þeir gáfust aldrei upp."