21.08.26 - 19:49
Ívan Guðjón Baldursson
Náðu samkomulagi um kaupverð fyrir Baleba

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá því að Manchester United sé búið að ná samkomulagi við Brighton um kaupverð fyrir miðjumanninn Carlos Baleba.
Man Utd borgar 65 milljónir punda til að kaupa Baleba, auk 5 milljóna í árangurstengdar aukagreiðslur. Þá heldur Brighton óuppgefnu hlutfalli af hagnaði af endursölu á leikmanninum.
Baleba fer í læknisskoðun á næsta sólarhring og gerir fimm ára samning við Rauðu djöflana. Hann er þriðji miðjumaðurinn sem gengur til liðs við félagið eftir að Youri Tielemans og Andrey Santos voru keyptir fyrr í sumar.
Baleba er ekki í leikmannahópi Brighton sem mætir Aston Villa í fyrstu umferð nýs úrvalsdeildartímabils á sunnudag.

TENGT EFNI
Hürzeler: Það er eina ástæðan fyrir því að Baleba mun ekki spila

Mynd: EPA