20.08.26 - 22:42
Brynjar Ingi Erluson
Undirstrikar mikilvægi Zubimendi og segir hann ekki á förum

Martin Zubimendi

Mynd: EPA

Arteta ætlar að halda Zubimendi

Mynd: EPA

Martin Zubimendi

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Martin Zubimendi verður áfram hjá Englandsmeisturum Arsenal en Mikel Arteta lagði áherslu á mikilvægi hans fyrir liðið og sagði hann gera miklar kröfur til sjálfs sín.
Zubimendi kom til Arsenal frá Real Sociedad á síðasta ári og gegndi mikilvægu hlutverki þegar liðið varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár og komst í úrslit Meistaradeildarinnar.
Arsenal sótti Bruno Guimaraes frá Newcastle United á dögunum og samkeppnin á miðsvæðinu hefur því aukist enn frekar.
Nokkrir leikmenn gætu yfirgefið Arsenal áður en glugginn lokar en Zubimendi og Myles Lewis-Skelly eru ekki til sölu.
Arteta staðfesti fyrr í dag að Lewis-Skelly yrði áfram og tók síðan af allan vafa um framtíð Zubimendi.
„Nei, hann er ótrúlega mikilvægur leikmaður. Hann var einn besti leikmaður Arsenal á síðasta tímabili og án hans hefðum við aldrei komið okkur í þá stöðu sem við vorum í á lokavikum tímabilsins.“
„Hann spilaði ekki mikið undir lokin en mínúturnar sem hann fékk voru mikilvægar. Enginn ætti að vanmeta framlag hans til liðsins.“
„Ég átti mörg samtöl við hann. Ég vildi að hann skildi ákvarðanir mínar og hann vissi nákvæmlega hvaðan þær komu. Hann er hreinskilinn og mjög beinskeyttur.“
„Hann gerir gríðarlegar kröfur til sjálfs sín og stundum fer það út í öfga. Hann veit það sjálfur og vissi einnig að við myndum bæta meiri gæðum við hópinn. Það þarf að vera samkeppni í hverri stöðu.“
„Þegar við komum inn í lokakafla tímabilsins hafði hann þegar spilað 55 leiki. Það er ekki boðlegt á þessu stigi fótboltans og hann skilur það,“ sagði Arteta.