20.08.26 - 23:03
Andri Stefánsson
Jeffs: Ekki nægilega gott hjá dómaratríóinu
Auglýsing

Ian Jeffs var svekktur eftir tap.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs var svekktur eftir tap.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan tók á móti Breiðablik í 16. umferð Bestu deildar kvenna. Stjarnan sigraði 2-0 og leikið var í Miðgarði vegna framkvæmda á Samsungvellinum. Fótbolti.net ræddi við Ian Jeffs, þjálfara Breiðabliks, eftir leik.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 Breiðablik
„Svekkelsi. Það er alltaf svekkjandi að tapa fótboltaleik og ég er svekktur með leikinn,“ sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, eftir leik
Hvað réði úrslitum í kvöld?
„Fyrri hálfleikurinn hjá okkur var ekki góður. Við lentum í veseni með boltann, náðum engum takti eða flæði í uppspilinu og mættum pressu Stjörnunnar illa. Ég man ekki eftir neinu dauðafæri sem við sköpuðum í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikurinn var töluvert betri af okkar hálfu. Við spiluðum betur, vorum beittari og fengum þrjú dauðafæri ásamt því að skapa fleiri álitlegar stöður. Síðan fengum við tvö slök mörk á okkur og var refsað. Mér fannst við vera að ná meiri tökum á leiknum og því var mjög svekkjandi að fá þessi mörk á okkur.“
Þið unnuð FH 3-0 í síðasta leik. Hvað breyttist á milli leikja?
„Það breyttist í rauninni ekkert. Þetta var bara nýr leikur. Það gekk mjög vel gegn FH og við áttum mjög góðan leik þar. Í dag áttum við hins vegar erfitt í fyrri hálfleik, byrjuðum ekki nógu vel og áttum í vandræðum með að tengja sendingar og finna svæðin þegar Stjarnan steig hátt á okkur. Seinni hálfleikurinn var betri, en við vorum einfaldlega ekki nógu góð í þeim fyrri. Við höfum spilað marga leiki á stuttum tíma og kannski var smá þreyta í liðinu, en það eru engar afsakanir.“
Hvernig fannst þér að spila leikinn í Miðgarði?
„Ég er ekki rosalega hrifinn af því að spila inni í ágúst, alveg hreinskilnislega. Það verður mikið um skot og leikurinn verður svolítið eins og hokkí, sem tekur kannski ákveðin gæði úr honum. Ég skil alveg að leikir séu færðir inn á gervigras á undirbúningstímabilinu, en um mitt sumar, þegar veðrið er gott, viljum við helst spila úti.“
Hversu mikil áhrif hafði það á ykkar leik?
„Ég ætla ekki að leita að afsökunum og kenna þessu eða hinu um. Við áttum erfitt í fyrri hálfleik þegar Stjarnan pressaði okkur vel. Okkur gekk illa að tengja sendingar og það vantaði flæði í uppspilið. Við náðum svo betri tökum á leiknum í seinni hálfleik. Ég held að enginn vilji vera mikið inni í ágúst. Við viljum helst spila úti á grasvelli, en aðstæðurnar voru þær sömu fyrir bæði lið.“
Ian var einnig ósáttur við frammistöðu dómarateymisins.
„Það voru tveir stórir dómar sem féllu ekki okkar megin. Í fyrri hálfleik fannst mér eiga að dæma annaðhvort aukaspyrnu eða víti þegar leikmaður okkar var stöðvaður við vítateigslínuna eftir að hafa sloppið í gegn. Síðan fannst mér vera augljóst brot í vítateignum í seinni hálfleik sem hefði átt að gefa okkur víti. Mér fannst frammistaða dómarateymisins ekki nægilega góð í dag.“