21.08.26 - 22:48
Ívan Guðjón Baldursson
„Viljum hafa sem mesta samkeppni um byrjunarliðssæti"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Arsenal

Mynd: EPA
Mikel Arteta var hress eftir þægilegan sigur Englandsmeistara Arsenal gegn nýliðum Coventry City í fyrstu umferð á nýju úrvalsdeildartímabili.

TENGT EFNI
Lampard: Leeds tapaði hérna í fyrra
Liðin mættust í opnunarleik deildartímabilsins fyrr í kvöld og urðu lokatölur 3-0. Coventry veitti ekki mikla mótspyrnu.
„Við spiluðum mjög vel og ég er ánægður með strákana. Bakverðirnir voru duglegir að hlaupa upp vængina og skapa hættu. Við vorum frábærir og stjórnuðum þessum leik frá fyrstu til síðustu mínútu," sagði Arteta, sem var sérstaklega ánægður með hversu vel lærisveinar hans byrjuðu leikinn.
„Það er mikilvægt að byrja leiki af krafti og ég er verulega ánægður með strákana í dag. Við erum með frábæran leikmannahóp og erum alltaf að leita leiða til að bæta okkur."
Ezri Konsa var keyptur til Arsenal á dögunum en kom of seint til að vera skráður með í hópinn í dag. Arteta er mjög ánægður með Konsa sem er 28 ára miðvörður, fæddur sama ár og Bruno Guimaraes sem var einnig keyptur á dögunum.
„Við erum núna búnir að kaupa tvo leikmenn sem eru 28 ára gamlir. Þeir eru 28 ára, ekki 38, og á bestu árum ferilsins. Við viljum hafa sem mesta samkeppni um byrjunarliðssæti."