Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. september 2020 09:02
Magnús Már Einarsson
Framtíð Alli í óvissu - Partey til Arsenal?
Powerade
Mynd: Getty Images
Antonio Rudiger.
Antonio Rudiger.
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin eru mætt með allar helstu kjaftasögurnar. Njótið!



Leikmönnum Tottenham var brugðið þegar Dele Alli var ekki valinn í leikmannahópinn gegn Southampton í gær. Alli er orðaður við Southampton. (Mail)

Framtíð Antonio Rudiger (27) varnarmanns Chelsea, er í óvissu en hann var ekki í hópnum gegn Liverpool í gær þrátt fyrir að vera heill heilsu. (Mail)

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir ekki viðræður vera í gangi um nýjan samning við Alexandre Lacazette (29) en hann á innan við tvö ár eftir af samningi sínum. (Mirror)

Shkodran Mustafi (28), varnarmaður Arsenal, er á óskalista Lazio og Napoli. (Sun)

Arsenal vill láta miðjumanninn Lucas Torreira (24) fara til Atletico Madrid sem hluta af kaupverði fyrir Thomas Partey (27). (Express)

Fulham hefur boðið í Marlon (25) varnarmann Sassuolo. (Football Italia)

Vinstri bakvörðurinn Alex Telles (27) segist vera einbeittur á verkefni sín með Porto en hann hefur verið orðaður við Manchester United. (Metro)

Luke Shaw (25) vinstri bakvörður Manchester United segir að félagið þurfi að styrkja hópinn meira. (TV2)

Manchester City hefur boðið í Jules Kounde varnarmann Sevilla. (Mirror)

Hinn 21 árs gamli Kounde hefur samþykkt að ganga í raðir Manchester City. (Foot Mercato)

Crystal Palace er í bílstjórasætinu í baráttunni um Rhian Brewster (20) sóknarmann Liverpool en Sheffield United og WBA hafa einnig áhuga. (Mail)

Liverpool ætlar ekki að selja miðjumanninn Alex Oxlade-Chamberlain (27) en hann hefur verið orðaður við Wolves. (Mirror)

Leicester og Tottenham eru að berjast um Kim Min-jae (23), varnarmann frá Suður-Kóreu, en hann er á mála hjá Beijing Guoan. (90min)

Ravel Morrison (27) er á leið til ADO Den Haag í Hollandi. (Omroep West)
Athugasemdir
banner