21.09.21 - 17:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Íslands: Guðný í hægri bakverði

Frá æfingu Íslands í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðný byrjar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá æfingu Íslands í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er búið að opinbera byrjunarlið Íslands sem mætir Hollandi í fyrsta leik í undankeppni HM í kvöld. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli; allir á völlinn!

Ingibjörg Sigurðardóttir og Glódís Perla Viggósdóttir eru saman í miðverði hjá Íslandi. Guðný Árnadóttir, miðvörður AC Milan, spilar í hægri bakverði.
Miðjan er eins og búist var við; Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er fyrirliði Íslands.
Agla María Albertsdóttir úr Breiðabliki fær tækifæri í dag. Fremstu þrjár spiluðu allar saman hjá Blikum og þekkjast því býsna vel.

Guðný byrjar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
