Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. október 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin í dag - Genk heimsækir West Ham
Michail Antonio og hans menn mæta Genk
Michail Antonio og hans menn mæta Genk
Mynd: Getty Images
Þriðja umferðin í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fer fram í dag en það er nóg af skemmtilegum leikjum á dagskrá. West Ham fær Genk í heimsókn og þá fer Tottenham til Hollands og mætir Vitesse í Sambandsdeildinni.

West Ham er í toppmálum og hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í riðlinum og getur farið langleiðina með að koma sér áfram í 32-liða úrslitin með sigri í kvöld.

Napoli spilar þá við Legia í C-riðli. Elías Rafn Ólafsson verður væntanlega í eldlínunni er Midtjylland mætir Rauðu Stjörnunni á meðan Ögmundur Kristinsson og hans menn í Olympiakos spila við Eintracht Frankfurt.

Leikir dagsins:

EVRÓPUDEILDIN: A-RIÐILL
19:00 Rangers - Brondby (Stöð 2 Sport 3)
19:00 Sparta Prag - Lyon

EVRÓPUDEILDIN: B-RIÐILL
19:00 Sturm - Real Sociedad
19:00 PSV - Mónakó (Stöð 2 Sport 3)

EVRÓPUDEILDIN: C-RIÐILL
19:00 Napoli - Legia

EVRÓPUDEILDIN: D-RIÐILL
16:45 Fenerbahce - Antwerp
19:00 Eintracht Frankfurt - Olympiakos (Stöð 2 Sport 4)

EVRÓPUDEILDIN: E-RIÐILL
16:45 Lazio - Marseille
19:00 Lokomotiv - Galatasaray

EVRÓPUDEILDIN: F-RIÐILL
16:45 Midtjylland - Rauða stjarnan (Stöð 2 Sport 4)
16:45 Ludogorets - Braga

EVRÓPUDEILDIN: G-RIÐILL
16:45 Betis - Leverkusen

EVRÓPUDEILDIN: H-RIÐILL
16:45 Rapid - Dinamo Zagreb
19:00 West Ham - Genk (Viaplay)

SAMBANDSDEILDIN: G-RIÐILL
16:45 Mura - Rennes
16:45 Vitesse - Tottenham (Viaplay)
Athugasemdir
banner
banner