Fotbolti.net
21.10.21 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

Vilja að Benzema fái tíu mánaða skilorðsbundinn dóm

Vilja að Benzema fái tíu mánaða skilorðsbundinn dóm
Canon

Mynd: EPA

Verið er að rétta yfir Karim Benzema og öðrum mönnum sem eru sakaðir um að hafa reynt að fjárkúga Mathieu Valbuena, miðjumann Olympiakos og fyrrum samherja Benzema í franska landsliðinu.
Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og var Benzema meinað að spila fyrir franska landsliðið.

Núna eru réttarhöld í gangi og mættu allir sakborningar nema Benzema í dómssal.

Í dag kom í ljós að ákæruvaldið fer fram á 10 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir Benzema, auk 75 þúsund evru sektar.

Benzema hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu í málinu, hann hafi einfaldlega verið að reyna að hjálpa liðsfélaga sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.