Fotbolti.net
21.10.26 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson

Olmo frá í mánuð

Olmo frá í mánuð
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Dani Olmo, leikmaður Barcelona á Spáni, verður frá keppni næsta mánuðinn eftir að hafa meiðst í 4-2 tapinu gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í gær.
Meiðsli settu mikinn svip á leik stórliðanna. Khvicha Kvaratskhelia sleit krossband og verður frá út tímabilið, en Ousmane Dembele og Marquinhos verða frá næstu vikurnar vegna meiðsla aftan í læri.

Barcelona hefur nú staðfest að Olmo, sem þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleik, verði frá keppni í að minnsta kosti mánuð.

Olmo reif lærvöðva í leiknum og ljóst er að hans verður sárt saknað hjá Barcelona, en hann missir meðal annars af stórslagnum gegn Real Madrid í El Clásico um næstu helgi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.