Fotbolti.net
21.10.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Raya: Myndi elska að spila á Spáni

Raya: Myndi elska að spila á Spáni
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
David Raya, markvörður Englandsmeistaranna í Arsenal, hefur viðurkennt að hann myndi elska að spila í spænsku úrvalsdeildinni, La Liga, áður en ferlinum lýkur.

Spánverjinn er algjör lykilmaður í liði Arsenal og er einn besti markvörður Evrópu.
Hann á nú minna en tvö ár eftir af samningi sínum við Arsenal og væri til í að spila í heimalandinu áður en ferlinum lýkur.

„Já, ég myndi elska það. Ég myndi elska að prófa LaLiga. Ég er mjög ánægður hér hjá Arsenal en ég væri til í að upplifa spænsku deildina," sagði Raya við Marca.

„Ég held að það sé mjög samkeppnishæf deild. Kannski, í framtíðinni, þá gæti ég spilað fyrir spænskt félag. Ég er Spánverji og ég myndi elska að spila þar - það er klárt," sagði Raya sem fór í akademíuna hjá Blackburn áður en hann hóf meistaraflokksferilinn á Englandi.

Hann verður líklega í eldlínunni í kvöld þegar Arsenal heimsækir Bayern München í Meistaradeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.