Fotbolti.net
21.10.26 - 18:13
Brynjar Ingi Erluson

Selma skoraði í stórsigri Rosenborg - Diljá með stoðsendingu

Selma Sól skoraði í norska bikarnum

Selma Sól skoraði í norska bikarnum

Canon

Mynd: Rosenborg

Kvennaboltinn
Selma Sól Magnúsdóttir komst á blað hjá Rosenborg í 32-liða úrslitum norska bikarsins í kvöld.
Blikinn hefur glímt við erfið meiðsli síðasta árið en er nú öll að koma til.

Hún spilaði í bikarnum í síðasta mánuði og kom einnig við sögu í Evrópubikarnum. Selma er hægt og rólega að koma sér aftur í gang og í kvöld fékk hún hálftíma gegn Rana.

Aðeins tíu mínútum eftir að hún kom inn á skoraði hún fjórða mark Rosenborg í öruggum 5-0 sigri og er liðið þar með komið áfram í 16-liða úrslitin.

Diljá Ýr Zomers lagði upp þriðja mark Brann í 3-0 sigri á Fyllingsdalen. Landsliðskonan kom inn af bekknum á 60. mínútu og var ekki lengi að láta til sín taka því aðeins sjö mínútum síðar lagði hún upp markið.

Sóley Edda Ingadóttir var í byrjunarliði Molde sem vann sannfærandi 5-0 sigur á Malvik. Þá fengu Fanney Inga Birkisdóttir og Arna Eiríksdóttir hvíld þegar Vålerenga lagði Strömsgodset að velli, 3-0.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.