Zlatan Ibrahimovic er í viðræðum við AC Milan en þó er ennþá langt í að samningar náist.
Zlatan spilaði með AC Milan frá 2010 til 2012 en hann er í leit að nýju félagi eftir að samningur hans hjá LA Galaxy rann út á dögunum.
Zlatan spilaði með AC Milan frá 2010 til 2012 en hann er í leit að nýju félagi eftir að samningur hans hjá LA Galaxy rann út á dögunum.
Forráðamenn AC Milan funduðu með Mino Raiola, umboðsmanni Zlatan, í gær.
AC Milan vill bjóða hinum 38 ára gamla Zlatan eins og hálfs árs samning en ennþá ber talsvert á milli hvað varðar laun.
Zlatan skoraði á sínum tíma 56 mörk í 85 leikjum með AC Milan en hann varð ítalskur meistari með liðinu árið 2011.
Athugasemdir