sun 21. nóvember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Xavi um Aguero: Þessar fréttir eru ekki sannar
Xavi
Xavi
Mynd: EPA
Xavi Hernandez, þjálfari Barcelona, segir það ekki rétt að Sergio Aguero sé að leggja skóna á hilluna.

Spænski blaðamaðurinn Gerard Romero greindi frá því að Aguero ætlaði sér að leggja skóna á hilluna og að hann myndi tilkynna það í næstu viku.

Aguero hefur ekkert spilað síðan hann fann fyrir verk í brjósti í leik Barcelona gegn Alaves í október. Aguero var skoðaður og kom í ljós að hann hefði fengið hjartatruflanir og má ekki spila næstu þrjá mánuði eða á meðan hann er í rannsóknum.

Xavi segir það hins vegar ekki rétt að Aguero sé að hætta og að fréttirnar séu ósannar.

„Ég veit ekkert nýtt um þetta mál. Ég talaði við hann um daginn og hann var rólegur. Það sem kom fram í fréttunum er ekki satt og við þurfum bara að bíða og sjá en vonandi kemur hann til baka og spilar fótbolta," sagði Xavi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner