Fotbolti.net
22.01.20 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Bruno Fernandes brjálaður - Hrinti myndavél eftir leik

Bruno Fernandes brjálaður - Hrinti myndavél eftir leik
Canon

Mynd: Getty Images

Bruno Fernandes, miðjumaður Sporting Lisabon, spilaði mögulega kveðjuleik sinn með félaginu í 2-1 tapi gegn Braga í undanúrslitum portúgalska deildabikarsins í gær.

Fernandes hefur verið sterklega orðaður við Manchester United undanfarnar vikur en viðræður eru í gangi á milli félaganna.

Fernandes var pirraður eftir leikinn í gær en hann þakkaði stuðningsmönnum Sporting ekki fyrir stuðninginn eftir leik heldur rauk beint inn í klefa.
Á leið sinni inn í klefa hrinti hann sjónvarpsmyndavél í leikmannagöngunum eins og sjá má hér að neðan.

Hinn 25 ára gamli Fernandes lagði upp mark Sporting í leiknum í gær en framtíð hans kemur betur í ljós á næstu dögum áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.