Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. janúar 2020 15:11
Magnús Már Einarsson
Umboðsmaður Bale blæs á Tottenham sögusagnir
Mynd: Getty Images
Jonathan Barnett, umboðsmaður Gareth Bale, hefur enn á ný blásið á sögusagnir þess efnis að hann sé á förum frá félaginu.

Bale var nálægt því að fara til Jiangsu Suning í Kína síðastliðið sumar en í þessari viku var hann orðaður við endurkomu til Tottenham á láni.

„Hann á tvö og hálft ár eftir af samningi sínum og hann er í góðu lagi. Hann verður áfram þarna og allt í góðu. Ég hef alltaf sagt það," sagði Barnett.

„Hlutirnir gætu breyst en að segja að hann fari á lán er fáránlegt. Það geta ekki mörg félög haft efni á honum. Hann er ánægður og vonandi vinnur hann fleiri titla með þeim."
Athugasemdir
banner
banner
banner