Fotbolti.net
22.01.21 - 09:39
Magnús Már Einarsson

Rooney: Manchester United verður meistari

Wayne Rooney

Wayne Rooney

Canon

Mynd: Getty Images

Wayne Rooney, stjóri Derby, telur að fyrrum félagar sínir í Manchester United verði enskir meistarar á þessu tímabili.
Manchester United er á toppnum í dag en liðið varð síðast meistari árið 2013. Rooney vann titilinn fimm sinnum með Manchester United og hann telur að liðið verði meistari í vor.

„Síðustu ár hefur Manchester United ekki verið tilbúið að berjat um titilinn en núna hefur liðið fengið leikmenn með sigurhugarfar eins og Fernandes og Cavani og það hefur hjálpað gríðarlega mikið," sagði Rooney.

„Núna er hópurinn að berjast um titilinn í ensku úrvalsdeildinni. Ég sagði við þjálfarateymið á skrifstofunni minni fyrir sex vikum að Manchester United muni vinna deildina og ég tel það ennþá í dag."

„Paul Pogba hefur átt gríðarlega mikinn þátt í því. Leikmennirnir sem komu með sigurhugarfar taka pressuna aðeins af Paul og hann getur núna sýnt gæði sín inni á vellinum."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.