Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. janúar 2023 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Xavi í áfalli yfir fréttum af Dani Alves - „Ég finn til með honum"
Mynd: EPA
Spænski þjálfarinn Xavi segist finna til með brasilíska hægri bakverðinum Dani Alves en sá síðarnefndi er ásakaður um kynferðislegt ofbeldi og situr nú á bakvið lás og slá meðan málið er til rannsóknar.

Alves er ásakaður um að hafa kynferðislega brotið á konu á skemmistað í Barcelona þann 30. desember.

Hann gaf sig fram til lögreglu fyrir helgi og var í kjölfarið yfirheyrður áður en hann mætti fyrir dómara.

Dómarinn neitaði að láta hann lausan gegn tryggingu og gistir Alves því í fangaklefa á meðan málin skýrast.

Xavi, sem bæði spilaði með og þjálfaði Alves, segist í áfalli yfir þessum fréttum.

„Það er erfitt að tjá sig um þetta mál. Ég er hissa og í raun í áfalli ef ég á að segja eins og er. Þetta snýst um réttlæti og það mun vinna sama hver niðurstaðan verður. Ég finn innilega til með Dani,“ sagði Xavi.
Athugasemdir
banner
banner
banner