Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 22. febrúar 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Balotelli svaf hjá 16 ára stelpu - Sakaður um nauðgun
Mynd: Getty Images
Ítalski sóknarmaðurinn Mario Balotelli hefur verið sakaður um nauðgun af táningsstelpu. Atvikin áttu sér stað í júlí 2017, þegar Balotelli var leikmaður Nice í Frakklandi.

Balotelli segir stúlkuna vera að reyna að fjárkúga sig. Hann viðurkennir að hann hafi sofið hjá henni umrætt kvöld, en hún hafi sagst vera 18 ára og sýnt honum skilríki.

Lögreglan í Brescia annast rannsókn um nauðgunina í samstarfi við lögregluna í Nice. Stelpan er búsett í Vicenza á Ítalíu og er lögreglan þar að rannsaka fjárkúgunarásökun Balotelli.

Mikill munur er á frásögnum stúlkunnar og Balotelli. Stúlkan lýsir Balotelli sem nauðgara með einbeittan brotavilja á meðan sóknarmaðurinn heldur því fram að stúlkan hafi verið meira en viljug og hafi í raun verið ákveðnari aðilinn í þeirra samskiptum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner