Fotbolti.net
22.03.19 - 23:04
Fótbolti.net

Raggi Sig: Vorum vel undirbúnir

Auglýsing
Raggi Sig: Vorum vel undirbúnir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ragnar Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins, segir að undirbúningurinn fyrir 2-0 sigurinn gegn Andorra hafi hjálpað mikið.
„Þetta var mjög gott og eiginlega nákvæmlega eins og við bjuggumst við og við kláruðum þetta vel," sagði Ragnar við Fótbolta.net.

Ragnar stóð vaktina í hjarta varnarinnar með Kára Árnasyni en þeir voru ekki í neinum vandræðum með sóknarmenn Andorra.

„Við vorum mjög vel undirbúnir. Erik og Freyr voru búinn að sýna okkur allt sem þeir höfðu upp á að bjóða. Við buðum þeim upp á alltof mikið af tækifærum eins og hornspyrnu og aukaspyrnur en 2-0 er mjög fínt," sagði Ragnar.

Mike hefur verið rætt um gervigrasvöllinn hjá Andorra en hann var ekki að kvarta mikið yfir því.

„Þetta er ekki besta gervigras sem ég hef spilað á en þetta var allt í lagi. Það eru einhver lið með gervigras í Rússlandi en ég er ekki búinn að spila á neinum vell sem er með gervigras á þessu tímabili."

„Ég var sáttur með leikinn og langt síðan ég hef spilað fjögurra manna línu en þetta var svosem ekki mikil mótspyrna á varnarlínuna. Maður fann bara gamla góða taktinn strax. Þetta kom að sjálfu sér,"
sagði hann ennfremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.