Fotbolti.net
22.03.21 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Shearer segir að Martial skorti hungur

Anthony Martial.

Anthony Martial.

Canon

Mynd: Getty Images

Anthony Martial skortir hungrið sem þarf til að spila sem fremsti maður hjá Manchester United. Þetta segir Alan Shearer, fyrrum landsliðsmaður Englendinga.

Enn einu sinni mistókst Martial að koma sér á blað þegar United tapaði gegn Leicester 3-1 í FA-bikarnum og er dottið úr leik.

„Martial var mjög einangraður. En þegar þú færð ekki hjálp frá liðsfélögunum þá getur þú stundum hjálpað sjálfum þér með því að koma þér í betri stöður," segir Shearer.
„Þetta var mjög pirrandi leikur fyrir hann. Ég tel að hann sé ekki 'nía', Honum virðist ekki líða þægilega í þeirri stöðu. Það er eins og hann sé ekki með hungrið í að skora eins mörg mörk og hann gæti skorað."

Leicester komst áfram og mun mæta Southampton í undanúrslitum FA-bikarsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.