Íslenska fótboltasumarið er að byrja þrátt fyrir að það sé ekki sumarlegt veður um landið um þessar mundir.
Mjólkurbikarinn hefst í kvöld með einum leik en þar mætast Elliði og Árborg á Fylkisvelli. Þetta er tækifæri fyrir liðin að komast lengra en í fyrra en hvorugu liðinu tókst að fara í gegnum fyrstu umferðina þá.
Á Selfossi fá heimakonur heimsókn frá KR í síðasta leiknum í riðlakeppninni í A deild Lengjubikars kvenna en KR hefur ekki unnið leik á mótinu á meðan Selfoss hefur unnið einn.
Þá fer fram úrslitaleikur í C-deild um umspilssæti þegar Álftanes fær Vængi Júpíters í heimsókn í karlaflokki. Í kvennaflokki mætast Haukar og ÍR.
miðvikudagur 22. mars
Mjólkurbikar karla
20:00 Elliði-Árborg (Fylkisvöllur)
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 6
19:00 Álftanes-Vængir Júpiters (OnePlus völlurinn)
Lengjubikar kvenna - A-deild, riðill 1
17:30 Selfoss-KR (JÁVERK-völlurinn)
Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 2
19:00 Haukar-ÍR (Ásvellir)