Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. mars 2023 21:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo lærði mikið af tímanum hjá Man Utd - „Betri maður í dag"
Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo segist vera betri maður í dag eftir að hafa skilið við Manchester United á stormasaman hátt í janúar.


Ronaldo var rekinn frá United eftir að hafa farið í frægt viðtal við Piers Morgan þar sem hann hraunaði yfir félagið.

Hann skrifaði undir samning við Al Nassr í Sádí Arabíu en hann viðurkennir að hafa átt erfiða tíma hjá United undir restina.

„Ég á ekkert erfitt með að segja það að þetta var slæmur kafli á mínum ferli en það er enginn tími til að sjá eftir því. Lífið heldur áfram, þetta var hluti af mínum vexti. Þegar við erum á toppnum sjáum við oft ekki hvað er fyrir neðan okkur," sagði Ronaldo.

„Ég er tilbúnari í dag og læri það að þetta var mikilvægt því ég hafði aldrei lent í þessu. Ég er betri maður í dag."


Athugasemdir
banner
banner