Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 22. mars 2023 12:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segja að Jochum hafi verið kallaður 'Uggi' - Víkingur mótmælir harðlega
Jochum Magnússon í leiknum umtalaða.
Jochum Magnússon í leiknum umtalaða.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Hart barist í Fossvoginum.
Hart barist í Fossvoginum.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Stjörnumaðurinn Þorkell Máni Pétursson.
Stjörnumaðurinn Þorkell Máni Pétursson.
Mynd: Fótbolti.net
Víkingar fengu 50 þúsund krónu sekt en úrslitin stóðu óhögguð.
Víkingar fengu 50 þúsund krónu sekt en úrslitin stóðu óhögguð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Jónsson meiddist í leiknum.
Ingvar Jónsson meiddist í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ.
Fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik Víkings og Vals í undanúrslitum Lengjubikarsins en Víkingar töpuðu þeim leik.
Úr leik Víkings og Vals í undanúrslitum Lengjubikarsins en Víkingar töpuðu þeim leik.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Stjarnan kærði í síðasta mánuði leik liðsins gegn Víkingi í Lengjubikarnum til KSÍ.

Jochum Magnússon, markvörður fæddur árið 2007, kom inn á fyrir meiddan Ingvar Jónsson þegar um hálftími lifði leiks og varði mark Víkings út leikinn. Jochum er skráður í Víking en var ekki skráður á skýrslu í þessum tiltekna leik.

Jochum var ekki á leikskýrslu Víkings heldur var Uggi Jóhann Auðunsson á skýrslunni.

KSÍ dæmdi í málinu og varð niðurstaðan sú að Víkingur þurfti að greiða 50 þúsund krónur í sekt, en úrslitin í leiknum standa óhögguð. Víkingur vann leikinn 2-1, vann riðilinn og fór því í undanúrslit Lengjubikarsins.

Þorkell Máni Pétursson, Stjörnumaður, var á leiknum en hann talaði um þetta mál í hlaðvarpi sínu fyrr í þessari viku. Hann sagði að Víkingsfólk hefði kallað Jochum, sem var í markinu, 'Ugga' á meðan leik stóð.

„Ég var á þessum leik og Víkingsliðið virkaði mjög taugaveiklað. Ég hef alltaf haldið mikið upp á Víking, enda skemmtilegt lið, en þetta var eiginlega það vandræðalegasta sem ég hef séð," sagði Máni er hann byrjaði að tala um málið.

„Vallarþulurinn kynnir inn Ugga markvörð, hann var kynntur inn með látum. Það sem var fyndnast í þessu var að varamannabekkurinn og leikmenn Víkings eru alltaf að kalla gæjann 'Ugga'. Þeir voru alltaf að kalla hann það. Markvörðurinn heitir eitthvað allt annað."

„Eina ástæðan fyrir því að maður tók eftir þessu nafni var fyrst og síðast það að þetta er sérstakt nafn, drullusvalt nafn. Maður er hálf svekktur að hafa ekki fattað upp á þessu nafni sjálfur - að skíra börnin sín það. Svo eru allir Víkingarnir að kalla hann það: 'Góður Uggi!' En eftir leikinn kemur einn leikmaður Stjörnunnar til mín og segir við mig að þeir séu ekki með Ugga í markinu. Þetta væri allt annar gæi og væri ekkert á skýrslu. Hann sagði við mig að þeir væru búnir að spila við Ugga hundrað sinnum og þetta væri ekki hann í markinu."

Máni segir að Víkingar hafi þarna verið að reyna að svindla og KSÍ sé búið að setja mjög vafasamt fordæmi með þessum dómi.

„Staðreynd málsins var sú að Víkingur var að reyna að svindla. Það gæti vel verið að skýrslan hafi verið óvart fyllt vitlaust út. En ef þeir hefðu tilkynnt dómara það eða látið Stjörnuna vita, þá hefði Stjörnunni alltaf verið drullusama. En KSÍ er búið að setja mjög vafasamar reglur með þessari 50 þúsund króna sekt. Stjarnan þarf ekki að fylla út neina skýrslu fyrir næstu leiki í Íslandsmótinu í fótbolta. Þeir geta verið með einhverja á bekknum og kallað einhverja inn. KSÍ er búið að sýna fordæmi fyrir þessu. Óskar Hrafn (þjálfari Breiðabliks) getur verið með 24 á bekknum og sett inn á það sem hentar. KSÍ er búið að setja fordæmi fyrir þessu."

Slæmt fordæmi
Í kæru sinni til KSÍ segja Stjörnumenn það sama og Máni, að Víkingar hafi reynt að blekkja þá sem voru á vellinum og hafi þannig vísvitandi fyllt skýrsluna vitlaust út.

„Þá telur kærandi einnig ýmislegt benda til þess að starfsmenn kærða hafi vísvitandi reynt að afvegaleiða starfsmenn kæranda með því láta sem Uggi Jóhann hefði komið inn á í stað Ingvars Jónssonar. Til dæmis kölluðu starfsmenn kærða leiðbeiningar inn á völlinn til Jochums þar sem þeir kölluðu hann röngu nafni, þ.e. vísuðu til hans sem Ugga," segir í kærunni.

Þar segir einnig að Víkingar hafi vitað af mistökunum fyrir leik og þeir hafi fengið ótal tækifæri til að leiðrétta þau. „Það gerðu þeir hins vegar ekki."

Stjörnumenn telja KSÍ vera að setja slæmt fordæmi með þessum dómi. „Kærandi telur ljóst að niðurstaða Aga- og úrskurðarnefndar dags. 23.02.2023, fái hún að standa, muni skapa afar varhugavert fordæmi til framtíðar. Liðum væri þannig gert kleift að hafa fleiri en sjö leikmenn á varamannabekk hverju sinni og velja þá sem koma inn á, óháð því hvort þeir séu skráðir á leikskýrslu eða ekki. Eftir leik gætu lið einfaldlega skýrt ákvörðun sína á þá leið að um hafi verið að ræða mistök starfsmanns sem hafi gleymt að leiðrétta skýrslunni, og því ekki um vísvitandi brot að ræða."

„Niðurstaða Aga- og úrskurðarnefndar gerir þannig ráð fyrir afar strangri sönnunarbyrði. Lið sem heldur því fram að leikskýrsla hafi verið vísvitandi ranglega fyllt út þarf því að sanna brot með því að t.d. leiða fram vitni sem staðfesta að brotið hafi verið vísvitandi. Slík niðurstaða væri óásættanleg og myndi í reynd opna einhvers konar ormagryfju. Leikskýrslur yrðu því í reynd tilgangslausar."

Því miður ranglega farið með staðreyndir málsins
Í svari Víkinga segir að Stjarnan hafi því miður ranglega farið með staðreyndir málsins. Þar segir að mannleg mistök hafi verið gerð við útfyllingu skýrslunnar fyrir leik og það sé rangt að ótal tækifæri hafi fengist til að leiðrétta skýrsluna eftir að henni hafði verið skilað inn. Starfsmaður Víkings sem fyllti úr skýrsluna gaf sér það að Uggi væri í hópnum í fjarveru Þórðs Ingasonar, en Uggi var á sama tíma að spila leik með 2. flokki.

Víkingur mótmælir einnig að starfsfólk félagsins hafi kallað Jochum 'Ugga' á meðan leik stóð.

„Það er rangt að starfsfólk Víkings hafi haft ótal tækifæri til að leiðrétta skýrsluna, enda var stutt í leik og gat starfsmaðurinn ekki nálgast dómara til þess að reyna að leiðrétta hana fyrir leikinn. Knattspyrnudeild Víkings mótmælir einnig harðlega og fordæmir það sem fram kemur í greinargerð knattspyrnudeildar Stjörnunnar að starfsfólk Víkings hafi kallað Jochum nafni Ugga Jóhanns í þeim tilgangi að afvegaleiða starfsfólk knattspyrnudeildar Stjörnunnar," segir í svari Víkinga sem bæta svo við:

„Það er öllum ljóst að umrædd mistök voru gerð af gáleysi og hafði knattspyrnudeild Víkings enga ástæðu til þess að fylla skýrsluna ranglega út af ásetningi, enda um löglegan leikmann að ræða sem var eini markvörður félagsins sem var tiltækur og gat tekið þátt í leiknum."

„Hið varhugaverða fordæmi sem knattspyrnudeild Stjörnunnar telur umrætt mál hafa í för með sér og sú ormagryfja sem deildin telur að opnist á ekki við rök að styðjast, frekar en margt annað sem kemur fram í greinargerðinni. Mannleg mistök geta átt sér stað og þau höfðu engin áhrif á umræddan leik, sem Víkingur sigraði 2-1, eða spilamennsku leikmannsins sem hélt marki sínu hreinu gegn liði Stjörnunnar. Það er miður að knattspyrnudeild Stjörnunnar hafi ákveðið að fara þá leið að gera starfsfólk Knattspyrnudeildar Víkings tortryggilegt og að halda því fram að það hafi reynt að blekkja lið Stjörnunnar eða dómara leiksins af ásetningi."

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar KSÍ
Það er ekki um það deilt að leikskýrslan hafi verið ranglega fyllt út, en því var haldið fram af Stjörnunni að það hafi verið gert með visvítandi hætti, að Víkingar hafi fengið tækifæri til að breyta því og reynt að blekkja viðstadda. Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar er á þá leið að ekki hafi verið hægt að sanna að svo sé.

„Við sönnunarmat nefndarinnar er í fyrsta lagi horft til þess að frásagnir í greinargerðum kæranda og kærða fari ekki saman er varðar meint vísvitandi brot. Í öðru lagi horfir nefndin til þess að ekki liggi fyrir nein gögn til stuðnings fullyrðingu í greinargerð kæranda að leikskýrsla hafi verið ranglega fyllt út með vísvitandi hætti af hálfu kærða," segir í niðurstöðu dómsins.

„Aga- og úrskurðarnefnd telur, með hliðsjón af framangreindu að ekki séu fullnægjandi líkur á að kærði hafi sýnt af sér vísvitandi verknað þegar leikskýrsla í leik Víkings R. og Stjörnunnar var ranglega fyllt út. Að mati nefndarinnar liggur þó ljóst fyrir að leikskýrsla hafi verið ranglega fyllt út af hálfu kæranda og staðfestir nefndin því þau viðurlög sem hið kærða félag hefur hlotið vegna þess. Kröfum kæranda um félaginu verði úrskurðaður 0-3 sigur í leik gegn Víkingi R. er því hafnað."

Hægt er að lesa dóminn í heild sinni hérna en það er ekki annað hægt að segja en að hann sé mjög svo áhugaverður. Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, sagði í samtali við Fótbolta.net fyrir stuttu að Víkingar hefðu átt skilið að fá sigur úr leiknum, en aðalmálið hefði verið fordæmið sem KSÍ væri að setja.

Sjá einnig:
Gústi Gylfa: Manni finnst KSÍ eiga að standa betur í lappirnar


Athugasemdir
banner
banner