Það fóru sex leikir fram í B-deild Lengjubikarsins í dag. Þrír leikjanna fóru fram í riðli 1 sem KFG var þegar búið að sigra fyrir lokaumferðina.
Þróttur Vogum tryggði sér annað sæti riðilsins með þægilegum sigri gegn KV á meðan Hvíti riddarinn endar í þriðja sæti eftir sigur gegn Kormáki/Hvöt.
Víkingur Ólafsvík lagði þá Augnablik að velli í síðasta leiknum í riðli 2. Ólsarar unnu 1-0 og enda í næstneðsta sæti riðilsins með 6 stig eftir 5 umferðir.
Augnablik endar með 7 stig og hefði getað náð öðru sætinu með sigri í dag.
Topplið Kára spilaði þá við Sindra í riðli 3 og sigraði 3-2 eftir spennandi viðureign þar sem Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði og fékk svo að líta rauða spjaldið.
Kári spilaði leikmanni færri í rúmlega hálftíma en skóp þrátt fyrir það sigur og endar riðlakeppni Lengjubikarsins með fullt hús stiga.
KFA tók á móti Tindastóli að lokum í riðli 4, þar sem staðan var markalaus allt þar til á lokakaflanum. Stólarnir skoruðu tvö mörk á síðustu 20 mínútunum til að tryggja sér sigur.
Þetta þýðir að KFG, Víðir, Kári og Höttur/Huginn sigra riðlana sína í B-deild Lengjubikarsins og mætast í undanúrslitum.
Þróttur V. 3 - 0 KV
1-0 Ásgeir Marteinsson ('33 )
2-0 Rúnar Ingi Eysteinsson ('38 )
3-0 Rúnar Ingi Eysteinsson ('47 )
Rautt spjald: Kostiantyn Pikul, Þróttur V. ('79)
Hvíti riddarinn 1 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Óðinn Breki Þorvaldsson ('61 )
Reynir S. 2 - 2 KFG
0-1 Pétur Máni Þorkelsson ('5 )
1-1 Jordan Smylie ('20 )
2-1 Ægir Þór Viðarsson ('57 )
2-2 Kristján Ólafsson ('75 )
Víkingur Ó. 1 - 0 Augnablik
1-0 Luis Romero Jorge ('53 )
Kári 3 - 2 Sindri
0-1 Kjartan Jóhann R. Einarsson ('9 )
1-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('35 )
2-1 Matthías Daði Gunnarsson ('49 )
3-1 Mikael Hrafn Helgason ('70 )
3-2 Abdul Bangura ('82 , Mark úr víti)
Rautt spjald: Sigurður Hrannar Þorsteinsson, Kári ('58)
Rautt spjald: Óðinn Pálmason, Sindri ('91)
KFA 0 - 2 Tindastóll
0-1 Svetislav Milosevic ('71 , Mark úr víti)
0-2 Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson ('85 )
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 1
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. KFG | 5 | 4 | 1 | 0 | 14 - 8 | +6 | 13 |
2. Þróttur V. | 5 | 3 | 1 | 1 | 14 - 7 | +7 | 10 |
3. Hvíti riddarinn | 5 | 2 | 2 | 1 | 10 - 8 | +2 | 8 |
4. KV | 5 | 2 | 1 | 2 | 16 - 11 | +5 | 7 |
5. Reynir S. | 4 | 0 | 1 | 3 | 6 - 12 | -6 | 1 |
6. Kormákur/Hvöt | 4 | 0 | 0 | 4 | 2 - 16 | -14 | 0 |
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 2
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víðir | 5 | 3 | 2 | 0 | 8 - 3 | +5 | 11 |
2. Ægir | 5 | 3 | 0 | 2 | 14 - 9 | +5 | 9 |
3. Augnablik | 5 | 2 | 1 | 2 | 8 - 7 | +1 | 7 |
4. Árborg | 5 | 2 | 0 | 3 | 11 - 13 | -2 | 6 |
5. Víkingur Ó. | 5 | 2 | 0 | 3 | 4 - 11 | -7 | 6 |
6. Ýmir | 5 | 1 | 1 | 3 | 9 - 11 | -2 | 4 |
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 3
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Kári | 5 | 5 | 0 | 0 | 22 - 7 | +15 | 15 |
2. Grótta | 5 | 3 | 1 | 1 | 14 - 6 | +8 | 10 |
3. Haukar | 5 | 2 | 2 | 1 | 16 - 7 | +9 | 8 |
4. Árbær | 5 | 2 | 0 | 3 | 17 - 18 | -1 | 6 |
5. Sindri | 5 | 1 | 0 | 4 | 9 - 19 | -10 | 3 |
6. ÍH | 5 | 0 | 1 | 4 | 3 - 24 | -21 | 1 |
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 4
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Höttur/Huginn | 5 | 4 | 1 | 0 | 14 - 7 | +7 | 13 |
2. Dalvík/Reynir | 5 | 4 | 0 | 1 | 13 - 6 | +7 | 12 |
3. Magni | 5 | 3 | 0 | 2 | 9 - 10 | -1 | 9 |
4. Tindastóll | 5 | 2 | 0 | 3 | 11 - 7 | +4 | 6 |
5. KFA | 5 | 1 | 1 | 3 | 4 - 7 | -3 | 4 |
6. KF | 5 | 0 | 0 | 5 | 3 - 17 | -14 | 0 |
Athugasemdir