Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 22. maí 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Alfreð Már Hjaltalín hættur hjá Leikni R.
Alfreð samdi við Leikni í vetur.
Alfreð samdi við Leikni í vetur.
Mynd: Heimasíða Leiknis
Alfreð Már Hjaltalín er hættur hjá Leikni R. og verður ekki með liðinu í 1. deildinni í sumar.

Alfreð kom til Leiknis frá ÍBV síðastliðið haust en þrálát meiðsli hafa orðið til þess að hann spilar ekki í sumar.

„Hann var ekki að ná að hrista meiðslin af sér," sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, í viðtali í Ljónavarpinu.

„Við vissum að hann væri meiddur og þetta var pínu gamble með hann. Hann var mjög duglegur og reyndi allt en það gekk ekki, því miður."

Alfreð er 25 ára gamall en hann spilaði ekkert síðastliðið sumar vegna meiðsla. Alfreð, sem spilar sem bakvörður og kantmaður, lék átta tímabil með Víkingi Ólafsvík áður en hann gekk til liðs við ÍBV fyrir sumarið 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner