Fotbolti.net
22.06.26 - 11:04
Kári Snorrason

26% líkur á að Albert fái símanúmerið hans Messi

Messi skoraði þrennu gegn Alsír í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Messi skoraði þrennu gegn Alsír í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Canon

Mynd: EPA

Um 26% líkur eru á því að Portúgal nær betri árangri en Argentína á yfirstandandi heimsmeistaramóti samkvæmt tölfræðilíkani Metils.

Þar af leiðandi eru 26% líkur á að Albert Brynjar Ingason fái símanúmerið hjá Messi. Albert og Eiður Smári Guðjohnsen gerðu eftirminnilegt veðmál í HM kvöldi á Rúv í síðustu viku um hvort liðið kæmist lengra og var símanúmer Messi undir.
Símanúmer Messi undir í veðmáli milli Alberts og Eiðs
TENGT EFNI

Símanúmer Messi undir í veðmáli milli Alberts og Eiðs

Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, doktorsnemi í tölfræði, sér um tölfræðilíkanið. En líkanið metur það sem svo að Argentína sé sigurstranglegasta liðið á mótinu. Spánverjar koma þar á eftir og í þriðja sæti er Kólumbía óvænt.

Á vefsíðu Metils kemur jafnframt fram að 14% líkur séu á því að Portúgal og Argentína mætist en líklegast er að það gerist í 8-liða úrslitum.

HM síða Metils



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.