3. deild: Dramatískur sigur Hattar

Ibrahim skoraði í sigri Hattar

Mynd: Höttur

Ibrahim skoraði í sigri Hattar

Mynd: Höttur
Ýmir 2 - 3 Höttur
1-0 Breki Ottósson ('17 )
1-1 Þórhallur Ási Aðalsteinsson ('22 )
1-2 Ibrahim Boulahya El Miri ('52 )
2-2 Björn Ingi Sigurðsson ('77 )
2-3 Arnar Harri Guðmundsson ('88 )
1-0 Breki Ottósson ('17 )
1-1 Þórhallur Ási Aðalsteinsson ('22 )
1-2 Ibrahim Boulahya El Miri ('52 )
2-2 Björn Ingi Sigurðsson ('77 )
2-3 Arnar Harri Guðmundsson ('88 )
Höttur vann sinn annan sigur í 3. deild karla þegar liðið lagði Ými að velli, 3-2, í Kórnum í gær.
Ýmismenn tóku forystuna á 17. mínútu með marki frá Breka Ottóssyni en Þórhallur Ási Aðalsteinsson var ekki lengi að jafna metin fyrir gestina.
Ibrahim Boulaya El Miri kom Hetti í 2-1 á 52. mínútu áður en Björn Ingi Sigurðsson jafnaði metin fyrir Ými þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir.
Allt stefndi í að liðin myndu skipta stigunum á milli sín en þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma skoraði Arnar Harri Guðmundsson sigurmark Hattar.
Höttur er í 9. sæti með tíu stig eftir níu leiki en Ýmir er einu sæti ofar með ellefu stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víðir | 9 | +13 | 22 |
| 2 | Tindastóll | 9 | +10 | 19 |
| 3 | KH | 9 | +15 | 18 |
| 4 | Reynir S. | 9 | +2 | 16 |
| 5 | KF | 9 | 0 | 12 |
| 6 | KV | 9 | -6 | 12 |
| 7 | Augnablik | 9 | 0 | 11 |
| 8 | Ýmir | 9 | -3 | 11 |
| 9 | Höttur | 9 | -1 | 10 |
| 10 | KÁ | 9 | -7 | 9 |
| 11 | Sindri | 9 | -11 | 8 |
| 12 | Árbær | 9 | -12 | 4 |