Aron Einar á leið í Þór

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í Þór og getur spilað með liðinu seinni hluta tímabilsins eftir að félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí.
Aron Einar er uppalinn í Þór og spilaði með Þór sex leiki seinni part sumars 2024 og skoraði eitt mark.
Hann hefur frá árinu 2019 spilað í Katar, fyrst með Al-Arabi og síðustu tvö ár með Al-Gharafa. Þar á undan hafði hann spilað á Englandi og í Wales í rúman áratug, en atvinnumannaferilinn hófst hjá AZ Alkmaar í Hollandi. Í vetur vann Emir-bikarinn í Katar í 3. sinn.

Aron er 37 ára og er næstleikjahæsti leikmaður í sögu karlalandsliðsins með 110 landsleiki. Hann kom við sögu í báðum landsleikjunum í síðasta landsleikjahléi. Hann er fyrrum landsliðsfyrirliði og leiddi íslenska liðið á bæði EM og HM.
Það er ljóst að um mikla lyftistöng fyrir Þór er að ræða, Þórsarar eru nýliðar í Bestu deildinni og eru þar í botnbaráttu sem stendur. Liðið er í næstneðsta sæti og hafði tapað sjö leikjum í röð fyrir leikinn gegn FH í gær, en sá leikur endaði með jafntefli.
Þórsarar ætla að styrkja sig enn frekar í glugganum og hafa leikmenn eins og Guðmundur Andri Tryggvason og Árni Vilhjálmsson verið orðaðir við félagið.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 12 | +35 | 34 |
| 2 | KR | 11 | +13 | 25 |
| 3 | Fram | 11 | +5 | 23 |
| 4 | Breiðablik | 11 | +9 | 19 |
| 5 | Valur | 12 | -4 | 16 |
| 6 | ÍA | 10 | -3 | 15 |
| 7 | Keflavík | 11 | -7 | 12 |
| 8 | Stjarnan | 12 | -5 | 11 |
| 9 | ÍBV | 11 | -5 | 11 |
| 10 | KA | 11 | -6 | 10 |
| 11 | Þór | 11 | -19 | 7 |
| 12 | FH | 11 | -13 | 6 |