Birna eftir þrennuna: Andrea Mist gjörsamlega bjó fyrstu tvö mörkin til fyrir mig

Birna Jóhannsdóttir skoraði öll þrjú mörk Stjörnunnar í 3-0 sigri gegn Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birna Jóhannsdóttir skoraði öll þrjú mörk Stjörnunnar í 3-0 sigri gegn Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birna Jóhannsdóttir var stjarna kvöldsins á Samsungvellinum þegar hún skoraði öll þrjú mörk Stjörnunnar í 3-0 sigri gegn Fram í 9. umferð Bestu deildarinnar.
Þrátt fyrir þrennuna var Birna fljót að deila heiðrinum með liðsfélögum sínum eftir leik, sérstaklega Andreu Mist Pálsdóttur sem átti stóran þátt í fyrstu tveimur mörkunum.
„Bara ógeðslega góð. Það er náttúrulega alltaf gaman að skora en ég ætla líka bara að gefa Andreu Mist shoutout. Fyrstu tvö mörkin, hún eiginlega bara gjörsamlega bjó þau til fyrir mig. Þannig mig langar að gefa henni shoutout hérna.“ Sagði Birna aðspurð um fyrstu viðbrögð eftir leik.
Fram byrjaði leikinn af krafti og Birna viðurkenndi að Stjörnukonur hefðu átt erfitt með að fóta sig á upphafsmínútunum.
„Mér fannst við fyrstu 20 mínúturnar hjá okkur ekkert eðlilega soft. Svo náum við að vinna okkur inn í leikinn og fórum að vinna baráttuna.“
„Fórum svo inn í hálfleik og vorum þá bara staðráðnar í því að koma aftur eins og við enduðum fyrri hálfleikinn.“
„Við vissum að þær myndu koma brjálaðar út úr hálfleik og reyna að ná jöfnunarmarkinu en við náðum bara að setja mark númer tvö og þá fannst mér við vera algjörlega með leikinn í okkar höndum.“
Birna virtist alltaf vera mætt á hárréttan stað í teignum þegar færi gáfust og sagði undirbúning á æfingasvæðinu hafa skilað sér.
„Já ég var svona að reyna að einbeita mér í að koma í cutbackið út í teiginn. Mér finnst við vera búnar að gera það vel á æfingum og það skilaði sér í dag.“
Nú tekur við hlé á Bestu deildinni vegna lokamóts Evrópumóts U19 landsliðsins. Stjörnukonur fá viku frí áður en æfingar hefjast á ný af fullum krafti.
„Ég held að við höfum allar gott að því að ná að hugsa um eitthvað annað en fótbolta í smá stund. Þetta er búið að vera mjög þétt leikjaprógramm og við spilum náttúrulega 120 mínútur fyrir örfáum dögum, það eru orðnir þreyttir fætur þannig að þetta er bara kærkomið frí.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan



