Draumur Yamal rættist - „Horfði á síðasta HM í skólanum“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lamine Yamal skoraði sitt fyrsta mark á heimsmeistaramóti þegar Spánn vann frábæran 4-0 sigur á Sádi-Arabíu í gær.
Yamal er að spila á sínu fyrsta heimsmeistaramóti og skoraði í sínum öðrum leik á mótinu. Hann kom inn af bekknum í fyrsta leiknum, markalausu jafntefli gegn Grænhöfðaeyjum.
Hann segir leikmenn Spánar hafa verið staðráðna í að svara fyrir þau úrslit.
„Við vorum ekki líkir okkur sjálfum í fyrsta leiknum. Það var öðruvísi en núna erum við mættir og við ætlum okkur meira. Jafnteflið í þeim leik sveið og fékk okkur til að hugsa en við mættum í þennan leik eins og við vildum,“ sagði Yamal.
Yamal var ánægður með að skora sitt fyrsta mark á HM og rifjaði upp hvar hann var síðast þegar Spánn spilaði á heimsmeistaramóti.
„Þetta var einstakt. Draumurinn hefur alltaf verið að spila á HM og að skora í mínum fyrsta byrjunarliðsleik er draumur að rætast. Á síðasta HM var ég í skólanum þannig að það að geta skorað hér, með móður mína og fjölskylduna að horfa á, er draumur,“ sagði Yamal.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!