Fotbolti.net
22.06.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Götuboltinn mótaði Olise - „Vil helst spila í tíunni“

Michael Olise er fastamaður í franska landsliðinu og lagði upp tvö mörk í fyrsta leiknum gegn Senegölum

Michael Olise er fastamaður í franska landsliðinu og lagði upp tvö mörk í fyrsta leiknum gegn Senegölum

Canon

Mynd: EPA

Franski landsliðsmaðurinn Michael Olise segist helst vilja spila fyrir aftan framherja og að það sé hans náttúrulega staða.
Michael Olise átti stórkostlegt tímabil með Bayern München og er orðinn fastamaður í franska landsliðinu.

Hann hefur aðallega spilað á hægri vængnum með Bayern og Frakklandi en vakti mikla athygli þegar Didier Deschamps, þjálfari Frakka, færði hann í tíuna í síðari hálfleiknum gegn Senegal.

Olise segir í viðtali við L'Equipe að það sé sú staða sem honum líður best í.

„Hvar líður mér best? Ég held í tíunni. Það er frjálsara hlutverk og ég ólst upp sem tía. Það er því það náttúrulegasta fyrir mig. Kannski ekki akkúrat núna, þar sem ég spila á vængnum, en tíuan er mín helsta staða,“ sagði Olise.

Hreyfingar Olise eru silkimjúkar og hann segir margt af því sem hann gerir á vellinum koma úr götuboltanum í Lundúnum.

„Þetta kemur úr götuboltanum. Ég spilaði með bróður mínum, sparkaði boltanum í vegginn, fór í einn á einn og allt það. Þetta kemur þaðan. Þetta er öðruvísi fótbolti en klárlega góð leið til að læra.“

„Fótbolti við slíkar aðstæður er einfaldlega frelsi. Þetta var ekki beint lærdómur í hefðbundnum skilningi. Ég naut þess bara að spila fótbolta. Ég elskaði það, svo einfalt er það. Ég held reyndar að allir elski það þegar þeir eru ungir,“
sagði Olise.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.