Man Utd að fá samkeppni frá PSG um Summerville

Crysencio Summerville með hollenska landsliðinu.

Mynd: EPA

Benjamin Sesko.

Mynd: EPA

Morgan Rogers.

Mánudagsslúðrið er komið úr prentun. Manchester United kemur talsvert við sögu í pakka dagsins. BBC tók saman.
Tilboð frá Sádi-Arabíu í brasilíska kantmanninn Raphinha (29) hjá Barcelona gæti aukið vonir Marcus Rashford (29) um að geta gengið í raðir Börsunga frá Manchester United. (TalkSport)
Flott frammistaða Crysencio Summerville (24) fyrir Holland á HM hefur áhrif á vonir Manchester United um að fá hann. Paris St-Germain hefur núna einnig áhuga á þessum kantmanni West Ham. (Mirror)
Manchester United hefur engan áhuga á að selja slóvenska sóknarmanninn Benjamin Sesko (23) í sumar þrátt fyrir áhuga frá Barcelona og Atletico Madrid. (TeamTalk)
Brighton veltir því fyrir sér hvort það ætti að bjóða Yasin Ayari (22) nýjan samning eða leyfa sænska landsliðsmiðjumanninum að fara. Newcastle hefur aukinn áhuga. (Football Insider)
Arsenal vonast til þess að Declan Rice geti hjálpað félaginu að sannfæra Morgan Rogers (23) um að koma til féagsins frá Aston Villa í sumar. (Mirror)
Á óskalista Juventus fyrir sumarið má meðal annars finna argentínska markvörðinn Emiliano Martínez (33) hjá Aston Villa og enska varnarmanninn John Stones (32) sem kvaddi Manchester City í sumar. (Gazzetta dello Sport)
Leeds hefur lagt fram tilboð upp á um 20 milljónir punda í norður-írska miðjumanninn Shea Charles (22) hjá Southampton. (TeamTalk)
Senegalski sóknarmaðurinn Nicolas Jackson (25) mun ekki þrýsta á að komast frá Chelsea þar sem hann vill sýna sig og sanna fyrir nýja stjóranum Xabi Alonso á undirbúningstímabilinu. (Football Insider)
Stade Rennais ætlar að gera tilboð í spænska sóknarmanninn Eliezer Mayend (21) hjá Sunderland. (Foot Mercato)
West Ham íhuga að bjóða enska varnarmanninum Adam Webster (31) samning en hann er félagslaus eftir að samningur hans við Brighton rann út. (Sun)
Ef Orlando City kaupir mexíkóska sóknarmanninn Santiago Gimenez (25) frá AC Milan mun ítalska félagið reyna við portúgalska sóknarmanninn Goncalo Ramos (25) hjá PSG. (Corriere dello Sport)