Fotbolti.net
22.06.26 - 12:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

María tjáir sig: Sé mikið eftir því að hafa misst hausinn algjörlega

María tjáir sig: Sé mikið eftir því að hafa misst hausinn algjörlega
Canon

Mynd: Keflavík

Hertz
María Rán Ágústsdóttir, leikmaður Keflavíkur, fékk að líta rauða spjaldið í leik liðsins gegn HK í gær. Hún fékk það fyrir að lemja í leikmann HK, Ragnhildi Sóleyju Jónasdóttur, eftir návígi þeirra á milli.

Fótbolti.net birti myndband af atvikinu fyrr í dag og hafði samband við Maríu sem sér eftir bræðiskastinu.
Myndband: María fékk rautt í Keflavík fyrir að lemja andstæðinginn
TENGT EFNI

Myndband: María fékk rautt í Keflavík fyrir að lemja andstæðinginn

„Það var heldur betur hiti í leiknum eins og sást og ég lenti í smá samstuði við hana Ragnhildi. Svo þegar ég ligg sparkar hún frá sér beint í bringuna á mér - viljandi - eða ég gaf mér það allavega. Það sést ekki vel á myndbandinu en línuvörðurinn sá það sem betur fer enda fékk hún einnig rautt spjald. Ég snögg reiddist og lamdi frá mér, ég er alls ekki stolt af þessu og mun díla við afleiðingarnar af þessu. Ég sé mikið eftir því að hafa misst hausinn algjörlega og mun læra af þessu."

„Ég hef alltaf verið mjög skapstór og það hefur verið minn helsti veikleiki á vellinum, þar sem það á til að vera stutt í reiðina hjá mér, en þetta er bara eitthvað sem ég þarf að vinna í,"
segir María sem er á tuttugasta aldursári. Hún sendi afsökunarbeiðni á Ragnhildi í kjölfar atviksins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.