Fotbolti.net
22.06.26 - 08:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stuðningsmenn Breiðabliks og Víkings ósáttir með leiktímann - „Fyrir hverja er leikurinn?"

Stuðningsmenn Breiðabliks og Víkings ósáttir með leiktímann - „Fyrir hverja er leikurinn?"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Á næstu sex dögum mun Breiðablik í tvígang taka á móti Víkingi á Kópavogsvelli. Á fimmtudag mætast liðin klukkan 19:15 í 12. umferð Bestu deildarinar og á sunnudag klukkan 14:00 mætast liðin í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

Stuðningsmenn bæði Breiðabliks og Víkings eru ósáttir við leiktímann á bikarleiknum og kalla eftir breytingu á honum frá KSÍ og rétthafanum RÚV. Þeir eru á því að leikurinn hefjist of snemma á sunnudag og það muni koma í veg fyrir að margir geti mætt á leikinn.

Þeir Hilmar Jökull (Breiðabliki) og Dagur Fran Ingvarsson (Víkingi) eru skrifaðir fyrir eftirfarandi Facebook-færslu.
Mótastjóri KSÍ: RÚV óskaði eftir því
TENGT EFNI

Mótastjóri KSÍ: RÚV óskaði eftir því

Fyrir hverja er leikurinn?

Stuðningsmenn Blika og Víkinga skora á KSÍ og RÚV að endurskoða þá ákvörðun sína að setja leik Breiðabliks og Víkings Reykjavíkur á klukkan 14:00 sunnudaginn 28. júní einungis svo RÚV þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að leikurinn skarist á við HM dagskrá RÚV.

Þennan sunnudag er fullt af fólki ennþá statt utanbæjar á þessum tíma dags, bæði stuðningsmenn, starfsmenn og sjálfboðaliðar, og það var augljóslega ekki verið að hugsa um neinn af þessum hópum þegar leiktíminn var ákveðinn.

Við vonum að KSÍ og RÚV sjái sóma sinn í að breyta leiktímanum aftur í 19:15 og passi sig svo í framtíðinni á því að hugsa út í það fyrir hverja fótboltaleikir á Íslandi eru spilaðir.

Fyrir hönd stuðningsmanna Breiðabliks og Víkings,
Hilmar Jökull Stefánsson og Dagur Frank Ingvarsson

Stuðningsmenn Breiðabliks og Víkings ósáttir með leiktímann - „Fyrir hverja er leikurinn?"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.