Tottenham tilbúið að opna veskið fyrir Rashford

Marcus Rashford.

Mynd: EPA

Marcus Rashford.

Mynd: EPA
Það er mikill gír á skrifstofu Tottenham en The i greinir frá því að Marcus Rashford sé næsta skotmark félagsins.
Tottenham hefur verið í baráttu við botninn síðustu tvö tímabil en menn eru ákveðnir í að láta það ekki endurtaka sig. Roberto De Zerbi náði að bjarga liðinu frá falli og undir hans stjórn hefst nú uppbygging.
Varnarmaðurinn Jan Paul van Hecke var keyptur frá Brighton á 52 milljónir punda og þá gerði Tottenham 80 milljóna punda tilboð í miðjumanninn Sandro Tonali en því var hafnað af Newcastle.

Framtíð Rashford er í óvissu en hann er ekki í myndinni hjá Manchester United og ekki ljóst hvort hann verði áfram hjá Barcelona, þar sem hann lék á lánssamningi.
United setti 40 milljóna punda verðmiða á Rashford en sagt er að tilboð Tottenham verði ekki það hátt. Rashford, sem er 28 ára, vonast helst eftir því að ganga alfarið í raðir Barcelona.