Vill fara frá Leipzig í sumar - Liverpool fær samkeppni frá PSG

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Yan Diomande, leikmaður RB Leipzig í Þýskalandi, vill yfirgefa félagið í sumarglugganum en þetta segir Fabrizio Romano. Leipzig hefur þegar hafnað einu tilboði frá Liverpool sem mun fá samkeppni frá Evrópumeisturum Paris Saint-Germain.
Leipzig hafnaði 87 milljóna punda tilboði Liverpool í Yan Diomande fyrir helgi en enska félagið er sagt undirbúa nýtt og endurbætt tilboð.
Samkvæmt erlendum miðlum vill Liverpool ganga hratt frá kaupunum á hinum 19 ára gamla vængmanni, en Leipzig hefur hingað til verið staðráðið í að halda honum.
Diomande vill hins vegar fara í sumar frekar en að bíða í eitt ár og áhuginn á honum er mikill. Evrópumeistarar PSG hafa einnig rætt við föruneyti leikmannsins og er hann sagður opinn fyrir því að ganga í raðir franska félagsins, þó ekkert formlegt tilboð hafi borist enn.
Samkvæmt BILD er PSG að undirbúa tilboð og hefur fylgst náið með stöðunni, ekki síst til að sjá hvort Leipzig sé tilbúið að selja.
Baráttan gæti því orðið hörð um Fílabeinsstrendinginn, sem er þessa stundina með landsliði sínu á heimsmeistaramótinu.