Fotbolti.net
22.07.16 - 20:31
Baldvin Kári Magnússon

Kristján: Mikilvægt að halda í við toppliðin

Auglýsing
Kristján var sáttur við spilamennsku sinna manna

Kristján var sáttur við spilamennsku sinna manna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Þetta er mikilvægur sigur. Mikilvægt að halda í við toppliðin sem eru að vinna leikinna í þessari umferð. Spiluðum heilt yfir bara nokkuð vel.“ Sagði Kristján Guðmundsson eftir 2-1 sigur gegn Þór í kvöld.
„Þórsrarar gerðu breytingar í hléinu og ætluðu sér að jafna leikinn sem tókst. Það var skemmtilegt að sjá hvernig þeir fóru í tvo sentera. Það tók okkur smá tíma að átta okkur á því en það tókst. “



“Í lokin er þetta tætingslegt. Maður finnur að Þórsararnir voru ósáttir og vildu ná í stigin því það er langt síðan þeir fengu stig.“




Félagskiptaglugginn er opinn en ætla Leiknismenn að styrkja sig fyrir komandi átök?

„Við erum að skoða ákveðin mál. Við höfum áhuga á því en það verður bara gert eitthvað sem virkilegt vit er í og kemur sér vel fyrir okkur en ekki bara til að taka leikmann.“



Nánar er rætt við Kristján í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.